Nýtt viðmiðunarverð 6. nóvember 2017 |
![]() |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 6. nóvember 2017, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur hækkar um 3,0%
Óslægður þorskur hækkar um 5,0%
Slægð ýsa helst óbreytt
Óslægð ýsa lækkar um -5,0%
Karfi helst óbreyttur
Ufsi lækkar um -1,3%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 6. nóvember 2017.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.