Nýtt viðmiðunarverð 2. nóvember 2018 |
![]() |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. nóvember 2018, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur hækkar um 10%
Óslægður þorskur hækkar um 10%
Slægð ýsa helst óbreytt
Óslægð ýsa helst óbreytt
Karfi hækkar um 10%
Ufsi hækkar um 3,3%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. nóvember 2018.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.