Nýtt viðmiðunarverð 3. maí 2019 |
![]() |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. maí 2019, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur lækkar um 3,1%
Óslægður þorskur helst óbreyttur
Slægð ýsa lækkar um 7%
Óslægð ýsa lækkar um 3,7%
Karfi hækkar um 4%
Ufsi helst óbreyttur
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. maí 2019.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.