Nýtt viðmiðunarverð 3. september 2019 |
![]() |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. september 2019, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Óslægður þorskur hækkar um 5%
Óslægð ýsa hækkar um 5%
Ufsi hækkar um 3,5%
Karfi hækkar um 4,5%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. september 2019.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.