Nýtt viðmiðunarverð 5. nóvember 2019 |
![]() |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. nóvember 2019, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur hækkar um 8%
Óslægður þorskur hækkar um 8%
Slægð ýsa hækkar um 8,7%
Karfi hækkar um 4%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 5. nóvember 2019.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.