
Nýtt viðmiðunarverð 1. mars 2012 |
![]() |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS) þann 29. febrúar 2012 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum þorski um 7%, lækka viðmiðunarverð á slægðri og óslægðri ýsu um 5% og jafnframt var gert nýtt samkomulag um viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum ufsa, þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi frá og með 1. mars 2012.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.
Nýtt viðmiðunarverð 5. janúar 2012 |
![]() |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS) þann 5. janúar 2012 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum þorski um 3%, hækka viðmiðunarverð á slægðri og óslægðri ýsu um 3% og jafnframt var viðmiðunarverð á karfa hækkað um 5% þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi frá og með 5. janúar 2012.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.
Nýtt viðmiðunarverð 1. nóv. 2011 |
![]() |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSí, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), þann 31. október 2011 var ákveðið að hækka viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum ufsa sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila um 10%. Jafnframt var ákveðið að lækka viðmiðunarverð á karfa sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila um 5%. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 2011.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998
Nýtt viðmiðunarverð 1. okt. 2011 |
![]() |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSí, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), þann 30. september 2011 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum þorski sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Jafnframt var ákveðið að lækka viðmiðunarverð á karfa sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Breytingin tekur gildi 1. október 2011.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998
Nýtt viðmiðunarverð 1. júlí 2011 |
![]() |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSí, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), þann 28. júní 2011 var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum ufsa sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Breytingin tekur gildi 1. júlí 2011.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998
Afgreiðslutími mánudaga-fimmtudaga
kl. 9:00 - 15:00
Föstudaga kl. 9:00 - 14:00
Millifærslur óheimilar án fiskverðssamninga
Að gefnu tilefni skal bent á að skv. 4. gr. laga nr. 13/1998 um Verðlagsstofu skipaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, er útgerð skylt að senda Verðlagsstofu án tafar alla samninga um fiskverð sem gerðir eru milli útgerðar og áhafnar eins og kjarasamningar segja til um að skuli gera.
Í 6. gr. sömu laga er tekið fram að Verðlagsstofa skuli að beiðni Fiskistofu og í tilefni af framsali aflamarks skv. 15. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, staðfesta að fyrir liggi samningur á milli útgerðar og áhafnar um fiskverð til uppgjörs.
Flutningur aflamarks á skip er því ekki heimill nema fyrir liggi hjá Verðlagsstofu fiskverðssamningur á milli áhafnar og útgerðar eða yfirlýsing um að ekki sé greiddur aflahlutur til annarra sjómanna en eiganda/eigenda (einn á báti). Eyðublöð þess efnis má finna hér efst á síðunni, undir liðnum Eyðublöð.
_______________________________________
Til sjómanna og útvegsmanna v/ byggðakvóta
Til þess að útgerð geti flutt aflamark á skip verður að liggja fyrir fiskverðssamningur á milli útgerðar og áhafnar, um ráðstöfun afla, sem samþykktur hefur verið af Verðlagsstofu. Verð á þorski, ýsu, karfa og ufsa í beinum viðskiptum á milli skyldra eða óskyldra aðila skal aldrei vera lægra en viðmiðunarverð á þessum tegundum er hverju sinni.
Nokkuð hefur borið á því að útgerðir sem hafa fengið byggðakvóta og landa afla í heimabyggð telja sig geta samið við sjómenn um verð sem er talsvert undir viðmiðunarverði.
Skv. 7. gr. reglugerðar nr. 605/2015, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2015/2016, er slíkt ekki leyfilegt.
Af þessu tilefni vill Verðlagsstofa benda útgerðum og sjómönnum á að Verðlagsstofa getur ekki samþykkt slíka fiskverðssamninga á milli útgerða og áhafna. Það er með öðrum orðum óheimilt að gera slíka samninga.
____________________________________
Afgreiðslutími:
mánudaga-fimmtudaga kl. 9:00 - 15:00
föstudaga kl. 9:00 - 14:00