
Nýtt viðmiðunarverð 1. febrúar 2017 | | Print | |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 1. febrúar 2017 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum ufsa um 3,0% . Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 1. febrúar 2017.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.
Nýtt viðmiðunarverð 4. janúar 2017 | | Print | |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. janúar 2017 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á eftirfarandi tegundum:
Slægður þorskur lækkar um 10 %
Óslægður þorskur lækkar um 7 %
Slægð ýsa lækkar um 5 %
Óslægð ýsa lækkar um 10 %
Karfi lækkar um 7 %
Slægður og óslægður ufsi lækkar um 3,7%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. janúar 2017.
Allar verðtöflur
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.
Nýtt viðmiðunarverð 2. desember 2016 | | Print | |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. desember 2016 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á óslægðum þorski um 5% og að sama skapi slægða og óslægða ýsu. Slægður og óslægður ufsi lækkar jafnframt um 3,7%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. desember 2016.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.
Nýtt viðmiðunarverð 2. nóvember 2016 | | Print | |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. nóvember 2016 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum ufsa um 2,9% og karfa um 4 %. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. nóvember 2016.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.
Nýtt viðmiðunarverð 4.október 2016 | | Print | |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. október 2016 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum ufsa um 2,7 %. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. október 2016.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.
Afgreiðslutími virka daga
kl. 8:30 - 12:00, 13:00 - 16:00
Millifærslur óheimilar án fiskverðssamninga
Að gefnu tilefni skal bent á að skv. 4. gr. laga nr. 13/1998 um Verðlagsstofu skipaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, er útgerð skylt að senda Verðlagsstofu án tafar alla samninga um fiskverð sem gerðir eru milli útgerðar og áhafnar eins og kjarasamningar segja til um að skuli gera.
Í 6. gr. sömu laga er tekið fram að Verðlagsstofa skuli að beiðni Fiskistofu og í tilefni af framsali aflamarks skv. 15. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, staðfesta að fyrir liggi samningur á milli útgerðar og áhafnar um fiskverð til uppgjörs.
Flutningur aflamarks á skip er því ekki heimill nema fyrir liggi hjá Verðlagsstofu fiskverðssamningur á milli áhafnar og útgerðar eða yfirlýsing um að ekki sé greiddur aflahlutur til annarra sjómanna en eiganda/eigenda (einn á báti). Eyðublöð þess efnis má finna hér efst á síðunni, undir liðnum Eyðublöð.
_______________________________________
Til sjómanna og útvegsmanna v/ byggðakvóta
Til þess að útgerð geti flutt aflamark á skip verður að liggja fyrir fiskverðssamningur á milli útgerðar og áhafnar, um ráðstöfun afla, sem samþykktur hefur verið af Verðlagsstofu. Verð á þorski, ýsu, karfa og ufsa í beinum viðskiptum á milli skyldra eða óskyldra aðila skal aldrei vera lægra en viðmiðunarverð á þessum tegundum er hverju sinni.
Nokkuð hefur borið á því að útgerðir sem hafa fengið byggðakvóta og landa afla í heimabyggð telja sig geta samið við sjómenn um verð sem er talsvert undir viðmiðunarverði.
Skv. 7. gr. reglugerðar nr. 605/2015, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2015/2016, er slíkt ekki leyfilegt.
Af þessu tilefni vill Verðlagsstofa benda útgerðum og sjómönnum á að Verðlagsstofa getur ekki samþykkt slíka fiskverðssamninga á milli útgerða og áhafna. Það er með öðrum orðum óheimilt að gera slíka samninga.
____________________________________
Afgreiðslutími virka daga
kl. 8:30 - 12:00, 13:00 - 16:00