
Nýtt viðmiðunarverð 6. september 2017 | | Print | |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 6. september 2017, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur hækkar um 3,0%
Óslægður þorskur hækkar um 3,0%
Slægð ýsa hækkar um 2,0%
Óslægð ýsa helst óbreytt
Karfi hækkar um 3,0%
Ufsi hækkar um 2,6%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 6. september 2017.
Að þessu sinni er breyting viðmiðunarverðs aðlöguð miðað við afurðaverðsvísitölur frá Hagstofu Íslands. Miðað er við að hlutfall á milli vísitölu fiskverðsmarkmiðs og vísitölu afurðaverðs víki ekki meira en sem nemur tilteknum gildum frá upphafsstöðu tímabils, samkvæmt kjarasamningi. Því gripu varnirnar, þ.e. viðmiðunin við afurðarverðið, inn í og því hækkar viðmiðunarverðið í stað þess að lækka.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.
Nýtt viðmiðunarverð 4. júlí 2017 | | Print | |
Fulltrúar hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), ákváðu í dag 4. júlí 2017, að breyta viðmiðunarverðum skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur hækkar um 4,9%
Óslægður þorskur hækkar um 2,2%
Slægð ýsa hækkar um 4,1%
Óslægð ýsa hækkar um 12,8%
Karfi er óbreyttur
Ufsi lækkar um -4,1%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. júlí 2017.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.
Nýtt viðmiðunarverð 9. júní 2017 | | Print | |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 7. júní 2017 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á eftirfarandi tegundum:
Slægður þorskur lækkar um 2,7%
Óslægður þorskur lækkar um 12%
Slægð ýsa lækkar um 4,9%
Karfi lækkar um 3%
Einnig var ákveðið að hækka óslægða ýsu um 3,4%.
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 9. júní 2017.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.
Nýtt viðmiðunarverð 4. maí 2017 | | Print | |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. maí 2017 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum ufsa um 1,3% og karfa um 3%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. maí 2017.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.
Nýtt viðmiðunarverð 4. apríl 2017 | | Print | |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. apríl 2017 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum ufsa um 5,7% og karfa um 5 %. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. apríl 2017.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.
Afgreiðslutími virka daga
kl. 8:30 - 12:00, 13:00 - 16:00
Millifærslur óheimilar án fiskverðssamninga
Að gefnu tilefni skal bent á að skv. 4. gr. laga nr. 13/1998 um Verðlagsstofu skipaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, er útgerð skylt að senda Verðlagsstofu án tafar alla samninga um fiskverð sem gerðir eru milli útgerðar og áhafnar eins og kjarasamningar segja til um að skuli gera.
Í 6. gr. sömu laga er tekið fram að Verðlagsstofa skuli að beiðni Fiskistofu og í tilefni af framsali aflamarks skv. 15. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, staðfesta að fyrir liggi samningur á milli útgerðar og áhafnar um fiskverð til uppgjörs.
Flutningur aflamarks á skip er því ekki heimill nema fyrir liggi hjá Verðlagsstofu fiskverðssamningur á milli áhafnar og útgerðar eða yfirlýsing um að ekki sé greiddur aflahlutur til annarra sjómanna en eiganda/eigenda (einn á báti). Eyðublöð þess efnis má finna hér efst á síðunni, undir liðnum Eyðublöð.
_______________________________________
Til sjómanna og útvegsmanna v/ byggðakvóta
Til þess að útgerð geti flutt aflamark á skip verður að liggja fyrir fiskverðssamningur á milli útgerðar og áhafnar, um ráðstöfun afla, sem samþykktur hefur verið af Verðlagsstofu. Verð á þorski, ýsu, karfa og ufsa í beinum viðskiptum á milli skyldra eða óskyldra aðila skal aldrei vera lægra en viðmiðunarverð á þessum tegundum er hverju sinni.
Nokkuð hefur borið á því að útgerðir sem hafa fengið byggðakvóta og landa afla í heimabyggð telja sig geta samið við sjómenn um verð sem er talsvert undir viðmiðunarverði.
Skv. 7. gr. reglugerðar nr. 605/2015, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2015/2016, er slíkt ekki leyfilegt.
Af þessu tilefni vill Verðlagsstofa benda útgerðum og sjómönnum á að Verðlagsstofa getur ekki samþykkt slíka fiskverðssamninga á milli útgerða og áhafna. Það er með öðrum orðum óheimilt að gera slíka samninga.
____________________________________
Afgreiðslutími virka daga
kl. 8:30 - 12:00, 13:00 - 16:00