Fara í efni

Viðmiðunarverð í gildi frá 4. mars 2024

Viðmiðunarverð í gildi frá 4. mars 2024

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. mars 2024, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur hækkar um 5%
Óslægður þorskur hækkar um 5%
Slægð ýsa helst óbreytt
Óslægð ýsa helst óbreytt
Ufsi lækkar um 5%
Karfi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. mars 2024. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.

Sækja allar verðtöflur