Nýtt viðmiðunarverð 1. apríl 2014
01. apr 2014
Nýtt viðmiðunarverð 1. apríl 2014
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), sem haldinn var 1. apríl 2014 var ákveðið að hækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum þorski um 5%. Einnig var ákveðið hækka slægða ýsu um 12% og lækka slægðan og óslægðan ufsa um 3%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 1. apríl 2014.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.
Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.