Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 1. mars 2013

Nýtt viðmiðunarverð 1. mars 2013

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSí, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), sem haldinn var 1. mars 2013 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum þorski að meðaltali um 10%. Einnig var ákveðið að lækka undirmál á slægðum þorski um 13,7% og óslægðum þorski um 14,3%. Jafnframt var ákveðið að setja núllpunkt í 5,5 kg í slægðum þorski og 6,5 kg í óslægðum. Einnig var ákveðið að lækka verð á óslægðri ýsu og karfa um 10% en hækka verðið á ufsa um 3%. Breytingin tekur gildi 1. mars 2013. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998. -- Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.