Nýtt viðmiðunarverð 1. október 2013
01. okt 2013
Nýtt viðmiðunarverð 1. október 2013
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), sem haldinn var 1. október 2013 var ákveðið að hækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum þorski um 5% og óslægðum þorski um 10%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 1. október 2013.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.
Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.