Nýtt viðmiðunarverð 2. mars 2015
02. mar 2015
Nýtt viðmiðunarverð 2. mars 2015
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. mars 2015 var ákveðið að hækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum þorski um 3%, óslægðri ýsu um 10% og karfa um 3%. Jafnframt var ákveðið að lækka verð á slægðri ýsu um 2%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. mars 2015.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.
Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.