Nýtt viðmiðunarverð 3. nóvember 2015
03. nóv 2015
Nýtt viðmiðunarverð 3. nóvember 2015
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. nóvember 2015 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum þorski um 4%. Einnig var ákveðið að lækka viðmiðunarverð á slægðri og óslægðri ýsu um 8% og að lækka karfa um 3%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. nóvember 2015.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.
Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.