Nýtt viðmiðunarverð 3. október 2018
03. okt 2018
Nýtt viðmiðunarverð 3. október 2018
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. október 2018, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
- Slægður þorskur helst óbreyttur
- Óslægður þorskur hækkar um 3,0%
- Slægð ýsa helst óbreytt
- Óslægð ýsa lækkar um -4,0%
- Karfi helst óbreyttur
- Ufsi helst óbreyttur
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. október 2018. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.