Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 3. september 2019

Nýtt viðmiðunarverð 3. september 2019

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. september 2019, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur óbreyttur
  • Óslægður þorskur hækkar um 5%
  • Slægð ýsa óbreytt
  • Óslægð ýsa hækkar um 5%
  • Ufsi hækkar um 3,5%
  • Karfi hækkar um 4,5%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. september 2019. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.

Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.