Nýtt viðmiðunarverð 3. september 2021
03. sep 2021
Nýtt viðmiðunarverð 3. september 2021
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS og VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. september 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur hækkar um 5,6%
Óslægður þorskur hækkar um 13,2%
Slægð ýsa lækkar um 8,5%
Óslægð ýsa hækkar um 5,2%
Slægður og óslægður ufsi lækkar um 2,3%
Karfi helst óbreyttur
Þetta á við um afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. september 2021.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.