Nýtt viðmiðunarverð 5. júlí 2018
05. júl 2018
Nýtt viðmiðunarverð 5. júlí 2018
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. júlí 2018, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
- Slægður þorskur hækkar um 2,0%
- Óslægður þorskur hækkar um 3,1%
- Slægð ýsa hækkar um 2,4%
- Óslægð ýsa hækkar um 5,0%
- Karfi hækkar um 2,5%
- Ufsi helst óbreyttur
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 5. júlí 2018. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.