Nýtt viðmiðunarverð 6.janúar 2015
06. jan 2015
Nýtt viðmiðunarverð 6.janúar 2015
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 6. janúar 2015 var ákveðið að hækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á óslægðum þorski um 5%. Jafnframt var ákveðið hækka viðmiðunarverð karfa um 7%.. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 6. janúar 2015.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.
Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.