Nýtt viðmiðunarverð 7. janúar 2013
08. jan 2013
Nýtt viðmiðunarverð 7. janúar 2013
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSí, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), sem haldinn var 7. janúar 2013 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum þorski um 2% og hækka viðmiðunarverð á slægðri og óslægðri ýsu um 2%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 7. janúar 2013.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.
Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.