Viðmiðunarverð í gildi frá 2. ágúst 2023
02. ágú 2023
Viðmiðunarverð í gildi frá 2. ágúst 2023
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. ágúst 2023, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur lækkar um 6,1%
Óslægður þorskur lækkar um 4,3%
Slægð ýsa lækkar um 4,4%
Óslægð ýsa lækkar um 10%
Ufsi helst óbreyttur
Karfi helst óbreyttur
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. ágúst 2023. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.