Viðmiðunarverð í gildi frá 2. júní 2023
02. jún 2023
Viðmiðunarverð í gildi frá 2. júní 2023
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. júní 2023, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur helst óbreyttur
Óslægður þorskur helst óbreyttur
Slægð ýsa lækkar um 7,9%
Óslægð ýsa lækkar um 7,9%
Ufsi hækkar um 4%
Karfi helst óbreyttur
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. júní 2023. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.
Sækja allar verðtöflur