Viðmiðunarverð í gildi frá 3. apríl 2024
03. apr 2024
Viðmiðunarverð í gildi frá 3. apríl 2024
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. apríl 2024, var ákveðið að breyta ekki viðmiðunarverði skv. kjarasamningum.
Öll verð haldast óbreytt frá 4. mars 2024.
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Ákvörðun þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.