Viðmiðunarverð í gildi frá 4. október 2022
05. okt 2022
Viðmiðunarverð í gildi frá 4. október 2022
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. október 2022, var ákveðið að breyta verðkúrfu óslægðs þorsks og viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
- Slægður þorskur hækkar um 5,0%
- Óslægður þorskur hækkar um 5,0%
- Slægð ýsa lækkar um -8,0%
- Óslægð ýsa lækkar um -8,0%
- Karfi breytist ekki
- Ufsi breytist ekki
Verðkúrfa óslægðs þorsks breytist þar sem verð hækkar nú jafnt með þyngd að 8 kg en hækkun var áður tvískipt að 6,5 kg. Grunnverð óslægðs þorsk var síðast 185,60 kr. en varð við breytingu verðkúrfu 225,75 kr. Eftir 5% verðhækkun 4. október hækkar grunnverð í 237,04 kr.
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. október 2022. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998. Sækja allar verðtöflur