Nýtt viðmiðunarverð 1. nóvember 2013
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), sem haldinn var 1. nóvember 2013 var ákveðið að hækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á óslægðri ýsu um 10%, slægðum og óslægðum ufsa um 2% og karfa um 5%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 2013.
01. nóv 2013
Lesa meira